Heimsmeistaramót unglinga í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði stendur yfir dagana
28. ágúst – 8. september en mótið fer fram á Möltu. Fyrir hönd Íslands keppa tveir karlar og ein kona, öll í
klassískum kraftlyftingum.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
Föstudagur 6. september
Máni Helgason -83 kg flokki junior kl. 6.00
Laugardagur 7. september
Alvar Helgason -105 kg flokki junior kl. 7.00
Laugardagur 7. september
Kolbrún Katla Jónsdóttir +84 kg flokki junior kl. 16.30
Bein útsending verður frá mótinu. SJÁ HÉR.