Skip to content

HM öldunga – Fjórir keppendur frá Íslandi.

Heimsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði fer fram dagana 5.–13. október en mótið fer fram í Sun City í Suður–Afríku. Fyrir hönd Íslands keppa þrír karlar og ein kona og munu þau öll keppa bæði í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði.

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:

HM í klassískum kraftlyftingum

Laugardagur 5. október
Sæmundur Guðmundsson   -83 kg  Master IV   Keppni hefst kl. 06.00
Flosi Jónsson   -105 kg  Master IV Keppni hefst kl. 06:00

Elsa Pálsdóttir   -76 kg  Master III  Keppni hefst kl. 13:00
Hörður Birkisson   -74 kg   Master III  Keppni hefst kl. 16:00

Dagskráin fyrir útbúnaðarhluta mótsins verður birt síðar.