Heimsmeistaramótið í bekkpressu fyrir alla aldursflokka hófst í dag í Rødby í Danmörku með keppni í öldungaflokkum.
Þrír íslenskir keppendur taka þátt á mótinu.
Fanney Hauksdóttir keppir í -63 kg opnum flokki, Viktor Samúelsson í -120 kg flokki ungmenna og Viktor Ben Gestsson í +120 kg flokki unglinga. .
Þau ættu öll að eiga möguleika á að berjast um verðlaun í sínum flokkum og við óskum þeim öllum góðs gengis.
Hægt er að fylgjast með mótinu hér: http://goodlift.info/live1/onlineside.html