Skip to content

Fyrirlestur – Óstöðvandi íþróttafólk.

Laugardaginn 4. nóvember milli kl. 13:00 til 14:30 fer fram fyrirlesturinn ÓSTÖÐVANDI ÍÞRÓTTAFÓLK í Afreksbúðum ÍSÍ. Fyrirlesarinn, Bjartur Guðmundsson, er leikari að mennt og fyrrum afreksmaður í taekwondo. Hann mun fjalla um leiðir til að virkja mátt hugans og tilfinninga til að hámarka frammistöðu, árangur og ánægju við íþróttaiðkun og keppni. Hér er á ferðinni áhugaverður og skemmtilegur fyrirlestur fyrir upprennandi afreksíþróttafólk. Fyrirlesturinn er ætlaður þátttakendum á aldrinum 15 til 18 ára en allir sem tengjast afreksstarfi sérsambanda eru velkomnir. Þátttaka er frí en skráning á fyrirlesturinn fer fram HÉR

Við hvetjum ykkur öll til þess að nýta ykkur þetta tækfæri og mæta í Laugardalinn í húsakynni ÍSÍ að Engjaveg 6, þriðju hæð, C-sal. Streymt verður frá fyrirlestrinum fyrir þau sem ekki komast en þátttakendur sem skrá sig fá sendan tölvupóst á laugardagsmorguninn með upplýsingum um streymi.