Stjórn KRAFT boðar til fundar með formönnum allra kraftlyftingafélaga og -deilda, laugardaginn 25. nóv. Formannafund sækir formaður félags, varaformaður eða einn fulltrúi frá hverju félagi. Staður, nánari tímasetning og dagskrá verður send með fundarboði tveimur vikum fyrir fund.