Skip to content

Evrópumeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum – Jens Elís og Sigríður

Tveir Íslendingar kepptu á Evrópumeistaramótinu í dag. 

Jens Elís Kristinsson hóf keppni snemma í morgun en hann keppir í -105 kg flokki M3. Jens opnaði með 155 kg hnébeygju en missti jafnvægið og náði ekki að klára. Hann mætti fílefldur tilbaka og tók 155 kg örugglega. Í þriðju hnébeygjunni hækkaði Jens um heil 22,5 kg í 177,5 kg sem var tilraun til 5 kg persónulegrar bætingar. Jens kláraði lyftuna svo sannarlega glæsilega. Í bekkpressu opnaði Jens með fislétt 100 kg. Í annarri lyftu var hækkað í 107,5 kg sem fóru þægilega upp. Jens reyndi síðan við persónulega bætingu í þriðju lyftu með 115 kg en þau fóru ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftunni opnaði Jens með 192,5 kg á stönginni. Jens hækkaði um 15 kg í næstu lyftu og kláraði 207,5 kg örugglega og 2,5 kg persónuleg bæting. Í lokalyftunni reyndi Jens við 212,5 kg en náði ekki að klára lyftuna. Samanlagður árangur varð 492,5 kg sem er 7,5 kg persónuleg bæting. 

Innilega til hamingju með mótið og bætingarnar, Jens Elís !

Sigríður Snorradóttir keppti síðdegis en hún keppir í -69 kg flokki M2. Hún opnaði í hnébeygju með öruggum 130 kg. Strax í annarri umferð bætti Sigríður eigið Íslandsmet þegar hún lyfti 135 kg. Í þriðju hnébeygjunni hækkaði Sigríður í 140 kg og kláraði lyftuna með glæsibrag og nýtt Íslandsmet í hús. Síðasta beygjan tryggði Sigríði brons í hnébeygju. Sigríður opnaði síðan í bekkpressu með 70 kg sem flugu upp. Í annarri lyftu fóru 72,5 kg upp sem var 0,5 kg bæting á hennar eigin Íslandsmeti. Sigríður reyndi við 75 kg í þriðju lyftu en þau fóru ekki upp að þessu sinni. Í réttstöðulyftu opnaði Sigríður með 140 kg. Í annarri lyftu var 145 kg hlaðið á, þau fóru upp en Sigríður náði ekki að læsa alveg. SIgríður kom ákveðin á pallinn í lokalyftunni og reyndi aftur við 145 kg sem yrðu 0,5 kg bæting á hennar eigin Íslandsmeti. Hún kláraði þriðja deddið með stæl og nýtt Íslandsmet komið. Samanlagður árangur varð 357,5 kg sem er 8,5 kg bæting á hennar eigin Íslandsmeti.

Innilega til hamingju með mótið, bronsið, bætingarnar og metin, Sigríður !