

Í dag kepptu tveir Íslendingar, báðir í öldungaflokki 3. Það voru þau Elsa Pálsdóttir sem keppir í -84 kg og Hörður Birkisson sem keppir í -74 kg.
Elsa opnaði í hnébeygjunni á 160 kg, lyftan fór örugglega upp en fékk hana dæmda ógilda vegna sigs. Kviðdómur hins vegar snéri við og 160 kg í hús. Í annarri hnébeygju hækkaði Elsa um 10 kg. Elsa kláraði lyftuna en dæmd ógild vegna sigs. Sama þyngd var sett á í þriðju hnébeygju en því miður náði Elsa ekki að klára lyftuna. Í bekkpressu opnaði Elsa með 90 kg en náði ekki að klára. Í annarri voru aftur 90 kg á stönginni og negldi Elsa þá lyftu örugglega. Elsa hækkaði um 7,5 kg og 97,5 kg flugu upp hjá henni og nýtt Íslandsmet. Í réttstöðulyftu flugu 165 kg upp í fyrstu lyftu hjá Elsu. Í annarri umferð voru 175,5 kg sett á stöngina, tilraun til heimsmets í Master 3. Elsa auðvitað negldi þá lyftu eins og fyrstu, þrjú hvít ljós og nýtt heimsmet í hús. Í þriðju og lokaumferð réttstöðunnar voru 185 kg sett á stöngina, Elsa mætti ákveðin á pallinn, reif stöngina upp og kláraði lyftuna af festu, bæting á eigin heimsmeti komið ! Samanlagður árangur varð 442,5 kg. Elsa tryggði sér gull í öllum þremur greinunum og Evrópumeistaratitilinn í samanlögðu. Innilega til hamingju með heimsmetin, gullin, Íslandsmetin og mótið, Elsa !
Í hnébeygju opnaði Hörður með 180 kg sem flugu upp en lyftan var bæting á hans eigin Íslandsmeti. Hann endurtók leikinn með 195 kg í annarri beygju. Í þriðju umferð fór 205 kg á stöngina og kláraði Hörður þá lyftu glæsilega, allar þrjár lyftur með þrjú hvít ljós. Flottar hnébeygjur tryggðu Herði brons í hnébeygju. Í bekkpressu opnaði Hörður á 110 kg sem flugu upp sem og 120 kg í annarri umferð. Hörður hækkaði í 125 kg í þriðju umferð sem var tilraun til nýs Íslandsmets en því miður var lyftan aðeins of þung í dag. Önnur lyftan tryggði Herði brons í bekkpressu. Í réttstöðulyftu opnaði Hörður á 190 kg en missti gripið í blálokin. Hann lét ekki deigan síga og reif upp sömu kíló í annarri umferð og kláraði lyftuna. Í þriðju og lokaumferð hækkaði Hörður í 202,5 kg en missti gripið á leið upp. Samanlagður árangur varð 515 kg. Innilega til hamingju með bronsin, Íslandsmetin og mótið, Hörður !
