Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram dagana 12.–17. mars en mótið er haldið í Velika Gorija í Króatíu. Fyrir hönd Íslands keppa sex karlar og þrjár konur en í heildina er von á 214 keppendum frá 29 löndum.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
Miðvikudagur 13. mars
Drífa Ríkarðsdóttir -57 kg flokki (B-grúppa) kl. 10.00
Friðbjörn Bragi Hlynsson -83 kg flokki kl. 15.00
Fimmtudagur 14. mars
Harrison Asena Kidaha -93 kg flokki (B-grúppa) kl. 10.00
Alexander Örn Kárason -93 kg flokki (A-grúppa) kl. 14.30
Föstudagur 15. mars
Arna Ösp Gunnarsdóttir -69 kg flokki (B-grúppa) kl. 9.00
Viktor Samúelsson -105 kg flokki (A-grúppa) kl. 13.00
Laugardagur 16. mars
Aron Friðrik Georgsson -120 kg flokki (B-grúppa) kl. 10.00
Sunnudagur 17. mars
Þorbjörg Matthíasdóttir +84 kg flokki kl. 9.00
Þorsteinn Ægir Óttarsson +120 kg flokki kl. 13.30
Í fylgd með keppendum verða Auðunn Jónsson yfirþjálfari og honum til aðstoðar verða Lára Bogey Finnbogadóttir, Íris Hrönn Garðarsdóttir og Hinrik Pálsson, sem einnig mun sitja þing EPF. Laufey Agnarsdóttir mun svo sinna störfum alþjóðadómara á mótinu.
Bein útsending verður frá mótinu. Sjá hér.
Áfram Ísland!