Opna Evrópumótið í kraftlyftingum hefst á morgun 7.maí í Pilzen í Tékklandi og stendur til 11.maí. 162 keppendur frá 23 löndum eru skráðir til leiks, 100 í karlaflokki og 62 konur.
Meðal þeirra eru María Guðsteinsdóttir, Ármanni og Auðunn Jónsson, Breiðablik.
María keppir í -72,0 kg flokki á miðvikudag en Auðunn í +120,0 kg flokki á laugardag. Samkvæmt Grétari Hrafnssyni landsliðsþjálfara eru þau bæði í góðu formi og mjög vel undirbúin.
Helgi Hauksson og Klaus Jensen munu dæma á mótinu og Sigurjón Pétursson situr þing EPF fyrir hönd KRAFT.
Hægt verður að fylgjast með á netinu: http://goodlift.info/live.php
Við óskum þeim öllu góðs gengis.