Haldið verður dómarapróf laugardaginn 12.febrúar nk. svo fremi sem aðstæður leyfa.
Skráning á kraft@kraft.is með afrit á helgih@internet.is fyrir 29.janúar.
Í skráningu skal koma fram nafn, kennitala, félag og símanúmer.
Prófgjald er 12.000 og skal greiða inn á reikning KRAFT ( 552-26-007004
kt. 700410-2180) fyrir 29.janúar.
Prófað verður skriflega úr keppnisreglum IPF og síðan verklega við dómgæslu.
Nánari upplysingar veitir Helgi Hauksson – helgih@internet.is
Pláss er fyrir fjóra kandidata í prófið. Ef fleiri vilja komast að verður þess að gætt að sem flest félög fái fulltrúa í prófið.
Í tengslum við prófið verður haldið æfingarmót þar sem dómarakandidatar taki verklega prófið. Við hvetjum félög til að senda iðkendur á mótið. Mótið hentar byrjendum sérstaklega vel.
Skráning á mótið á kraft@kraft.is fyrir 29.janúar. Þar skal koma fram nafn, kennitala, þyngdarflokk, félag og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar. Keppnisgjald 3500 krónur.