Skráningu á Bikarmótið í klassískum kraftlyftingum og á Bikarmótið í bekkpressu með búnaði er lokið. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta þyngdarflokki hjá þeim sem skráðir eru til þátttöku er til miðnættis sunnudaginn 24. mars. Mótin eru bæði í umsjá Kraftlyftingadeildar Breiðabliks og verður tímatafla birt innan tíðar.
Bikarmótið í klassískum kraftlyftingum: KEPPENDALISTI
Bikarmótið í bekkpressu með búnaði: KEPPENDALISTI