Bikarmótið í klassískri bekkpressu fór fram í dag í Félagsmiðstöðinni 100 og 1 í Reykjavík en mótið var haldið utandyra í tengslum við Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Mótið var vel sótt og stemmingin mjög góð, enda var bæði boðið upp á átök við stálið og önnur góð skemmtiatriði samhliða mótinu. Nánari úrslit koma fljótlega inn á vef KRAFT en hér má sjá fréttaumfjöllun RÚV um keppnina og ljósmyndir sem teknar voru á mótinu.