Á morgun laugardaginn 5.mars keppir Auðunn Jónsson í ProDeadlift keppninni á Arnold Sports Festival 2011.
Þetta mót er með stærstu íþróttasamkomum í Bandaríkjunum og þó víðar væri leitað, stórt í sniðum og glæsilegt að hætti heimamanna. Keppt er um vegleg verðlaun í mörgum greinum, en einungis fáum útvöldum er boðið að keppa í réttstöðukeppninni. Hér má sjá lista yfir keppinauta Auðuns.
Keppnin stendur yfir frá kl. 16.00 – 18.00 á staðartíma og hægt verður að fylgjast með keppninni á http://arnold.usapowerlifting.com/