Skip to content

Arnhildur Anna með tvö ný unglingamet

  • by

photoArnhildur Anna Árnadóttir, Grótta, bætti persónulegan árangur sinn um 17,5 kg og setti tvö íslandsmet unglinga á HM í dag. Hún keppti í -72,0 kg flokki og vigtaði 70,76 kg.
Arnhildur, eða Anna sem þulirnir kusu að nefna hana, byrjaði á 160,0 kg létt í hnébeygju. Henni mistókst með 167,5 í annari, en í þriðju tilraun tók hún sig saman í andlitinu og kláraði örugglega 167,5 kg sem um leið er nýtt íslandsmet unglinga.
Á bekknum endurtók sagan sig. Hún byrjaði létt með 90,0 kg, mistókst með 95,0 í annari en kláraði það svo örugglega í þriðju tilraun og bætti persónulegan árangur sinn á bekknum um 5 kg.
Í réttstöðu byrjaði Arnhildur í 162,5 kg mjög létt. Hún fór beint í 170,0 kg og togaði það upp af miklu öryggi og sett um leið Íslandsmet unglinga. Í þriðju tilraun reyndi hún við 175,0 kg en það var of þungt. Bronsið vannst á 172,5 kg.
Arnhildur endaði í 6.sæti með 432,5 kg samanlagt. Það er jöfnun við Íslandsmet unglinga í samanlögðu og persónuleg bæting um 17,5 kg.
Við óskum Arnhildi til hamingju með glæsilegar bætingar og ný met.

Sigurvegarinn í flokknum var Marte Elverum frá Noregi með 515,0 kg.