Skip to content

Arna og Þorbjörg keppa á Vestur-Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum.

Vestur-Evrópumótið í klassískum kraftlyftingum og kraftlyftingum með búnaði verður haldið helgina 13.–15. september en mótið fer fram á Möltu. Fyrir hönd Íslands keppa þær Arna Ösp Gunnarsdóttir og Þorbjörg Matthíasdóttir sem báðar keppa í klassískum kraftlyftingum. Þær stöllur keppa báðar á laugardeginum þar sem þyngdarflokkum kvenna er skipt niður á þrjú holl.

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:

Laugardagur 14. september
Arna Ösp Gunnarsdóttir   -69 kg flokki. Keppni hefst kl. 9.00
Þorbjörg Matthíasdóttir   +84 kg flokki. Keppni hefst ca. kl. 10.00