Alex Cambrey Orrason hefur lokið keppni á HM í kraftlyftingum með seríuna 325 – 202.5 – 282.5 = 810 kg. Alex lenti í kröppum dans við tímann í fyrstu tilraun sinni í hnébeygju og fékk ekki merki frá dómara um að hefja lyftu fyrr en á síðustu sekúndu. Þessi tímapressa kom honum þó ekki úr jafnvægi og kláraði hann lyftuna sem var dæmd gild. Dýptin í annarri og þriðju lyftu hlaut hins vegar ekki náð fyrir augum dómaranna þannig að hann sat uppi með opnunarþyngdina 325 kg. Í réttstöðulyftu gerði hann svo atlögu að eigin Íslandsmeti og var hársbreidd frá því klára lyftuna. Verkefni sem verður örugglega afgreitt á næsta móti. Samanlagt lyfti hann því 810 kg sem tryggði honum 10. sætið í flokknum. Til hamingju Alex með árangurinn!