KFA hefur í samráði við mótanefnd KRAFT ákveðið að breyta dagsetningu á ÍM unglinga í klassískum kraftlyftingum. Mótið fer fram á Akureyri dagana 20.og 21.september nk.
Keppnin verður tvískipt. Annarsvegar íslandsmeistaramót drengja og stúlkna flokki (14-18 ára) á laugardeginum og hinsvegar unglingaflokki kvenna og karla (19-23 ára) á sunnudeginum.