Fanney Hauksdóttir og Aron Teitsson, kraftlyftingakappar, voru í gær valin íþróttafólk Seltjarnarness 2013, en árangur þeirra, bæði hér heima og erlendis, var mjög góður í fyrra. Kraftlyftingadeild Gróttu hlaut auk þess afreksstyrk til starfsins.
Við óskum þeim öllum til hamingju með þennan mikla heiður.