Laugardaginn 19.oktober nk verður efnt til bæjarliðakeppni milli Akureyrar og Stavanger. Keppnin fer fram á heimavelli KFA á Akureyri og HÉR má sjá lista yfir keppendur. Þessi skemmtilega nýjung í mótaflórunni er endurtekning á móti sem var haldið 1989 í Noregi.
Nokkrir íslendingar eru í liði Stavanger, m.a. Freyr Aðalsteinsson sem er Akureyringur en hefur búið lengi í Noregi. Freyr hefur haldið góðum tengslum við kraftlyftingafélaga sína hér heima alla tíð og fer nú fyrir nýju félaginu sínu í heimsókn til hins gamla.
Víð óskum KFA og Stavanger til hamingju með þetta frábæra framtak og keppendum góðs gengis. Keppnin hefst kl. 12.00 og verður án efa hin besta skemmtun.