Þriðja þing Kraftlyftingasambands Íslands var haldið í húsnæði Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands þann 19.janúar. Fulltrúar kraftlyftingafélaga fjölmenntu á þingið sem og aðrir gestir þ.á.m. framkvædastjóri og forseti ÍSÍ, þau Líney Rut Halldórsdóttir og Ólafur Rafnsson, sem jafnframt ávarpaði þingið. Kosning formanns fór fram á þinginu og var Sigurjón Pétursson endurkjörinn formaður KRAFT til eins árs en einnig fór fram kjör varamanna í stjórn. Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í varastjórn: Auðunn Jónsson, Óskar Ingi Víglundsson og Aron Du LeeTeitsson. Þá fór fram góð og gagnlega umræða um klassískar kraftlyftingar og fleira og í kjölfarið voru samþykktar tillögur frá Gróttu um að afreksstefna KRAFT taki mið af klassískum kraftlyftingum og lágmörk verði sett fyrir skráningu klassískra meta og fyrir landsliðhóp.
Ársþingi Kraftlyftingasambandsins er lokið.
- by admin
Tags:þing