Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Ólafur Hrafn Ólafsson fóru til Noregs í morgun í fylgd Grétars Hrafnssonar landsliðsþjálfara. Þar keppa þau á morgun á Norðurlandamóti unglinga.
Guðrún Gróa, íþróttamaður ársins 2011 hjá USVH, keppir í -72,0 flokki en Ólafur Hrafn í -93,0 flokki.
Þetta er fyrsta alþjóðamót hjá þeim báðum og markmiðið er fyrst og fremst að klára mótið vel og helst ná persónulegum bætingum.
Ef allt gengur upp gæti þau bæði átt möguleika á að vinna til verðlauna og við leyfum okkur að krossa fingur og vona það besta.
Upplýsingar um mótið og úrslit má finna á heimasíðu NPF.