Næstkomandi laugardag, 23. maí, hefst Heimsmeistaramótið í bekkpressu (klassík og búnaður). Íslenski hópurinn í ár er mjög stór sem er ánægjulegt. Mótsstaður er að þessu sinni Varsjá í Póllandi. Yfirþjálfari er Þórunn Brynja Jónasdóttir en hún mun einnig dæma. Aðstoðarþjálfari er Hjálmar Andrésson.
Beint streymi er frá mótinu á YouTube rás IPF.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
SUNNUDAGINN 24. MAÍ – Klassísk bekkpressa
Þórunn Brynja Jónasdóttir, -84 kg öldungaflokkur 2, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
ÞRIÐJUDAGINN 26. MAÍ – Klassísk bekkpressa
Guðrún Ásgeirsdóttir, -69 kg telpnaflokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
Grímur Pétursson, -83 kg drengjaflokkur, kl. 15.30 að íslenskum tíma.
MIÐVIKUDAGINN 27. MAÍ – Klassísk bekkpressa
Eva Valdimarsdóttir, -57 kg unglingaflokkur, kl. 09.30 að íslenskum tíma.
Benóný Helgi Benónýsson, -93 kg unglingaflokkur, kl. 17.00 að íslenskum tíma.
Þórður Skjaldberg, -105 kg unglingaflokkur, kl. 17.00 að íslenskum tíma.
FIMMTUDAGINN 28. MAÍ – Klassísk bekkpressa
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg opinn flokkur, kl. 13.00 að íslenskum tíma.
FÖSTUDAGINN 29. MAÍ – Bekkpressa með búnaði
Guðný Ásta Snorradóttir, +84 kg öldungaflokkur 2, Pallur 2, kl. 14.00 að íslenskum tíma.
LAUGARDAGINN 30. MAÍ – Bekkpressa með búnaði
Anton Haukur Þórlindsson, -83 kg drengjaflokkur, Pallur 2, kl. 14.30 að íslenskum tíma.
LAUGARDAGINN 31. MAÍ – Bekkpressa með búnaði
Jón Sigurður Gunnarsson, -59 kg opinn flokkur, kl. 07.00 að íslenskum tíma.
Elín Melgar Aðalheiðardóttir, -69 kg opinn flokkur, kl. 10.00 að íslenskum tíma.
Áfram Ísland !
