Skip to content

Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum – ÚRSLIT

Í dag var Íslandsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum haldið í íþróttahúsinu Digranesi en mótshaldari var Kraftlyftingadeild Breiðabliks. Keppt var í öllum aldursflokkum öldunga, yngstu keppendurnir fæddir 1986 og elsti 1942. Fjöldi gesta mætti til að hvetja sitt fólk. Íslandsmet féllu hægri vinstri sem og margar persónulegar bætingar. 

Stigahæstu einstaklingar yfir alla aldursflokka voru: 

Kvennaflokkur : Guðný Ásta Snorradóttir (KFR)
Karlaflokkur : Benedikt Björnsson (MAS)

Heildarúrslit má finna HÉR.
Upptöku af mótinu má finna HÉR.

KRAFT óskar öllum keppendum innilega til hamingju með metin, bætingarnar og mótið!