Skip to content

Evrópumeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum – Dagbjartur

Síðast keppandinn í íslenska hópnum mætti á pallinn í dag. Það var Dagbjartur Finnsson en hann keppir í +120 kg M2 flokki. Dagbjartur mætti ferskur á pallinn og tók fislétta fyrstu hnébeygjuna með 212,5 kg. Í annarri beygju hækkaði hann í 225 kg sem hann lyfti örugglega. Dagbjartur lét í lokabeygju setja 235 kg á stöngina sem var tilraun til bætingar á eigin Íslandsmeti um 7,5 kg. Hann kláraði beygjuna af öryggi og bætti sitt eigið Íslandsmet. Í bekkpressu opnaði Dagbjartur á  þægilegum 137,5 kg. Hann hækkaði um 7,5 kg í næstu umferð og lyfti 145 kg eins og fyrsta bekknum. Í síðustu bekkpressunni gerði Dagbjartur tilraun við nýtt Íslandsmet (hans eigið) þegar 152,5 kg voru sett á stöngina. Því miður náði hann ekki að klára þá lyftu. Í réttstöðulyftunni opnaði Dagbjartur á léttum 220 kg. Hann lyfti síðan 230 kg í annarri lyftu sem voru bara 2,5 kg frá hans eigið Íslandsmeti. Í lokalyftunni var 240 kg hlaðið á og kláraði Dagbjartur lyftuna með glæsibrag og nýtt Íslandsmet komið í hús. Samanlagður árangur varð 620 kg sem eru heil 17 kg bæting á hans eigin Íslandsmeti.

Innilega til hamingju með mótið, bætingarnar og metin, Dagbjartur !