Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram dagana 18.–23. mars en mótið er haldið á Malaga á Spáni. Fyrir hönd Íslands keppa sex karlar og sjö konur en í heildina er von á 269 keppendum frá 33 löndum á mótið.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
Þriðjudagur 18. mars
Kristrún Ingunn Sveinsdóttir -52 kg flokki (B-grúppa) kl. 08.00
Miðvikudagur 19. mars
Drífa Ríkarðsdóttir -57 kg flokki (B-grúppa) kl. 12.30
Friðbjörn Bragi Hlynsson -83 kg flokki (B-grúppa) kl. 12.30
Fimmtudagur 20. mars
Harrison Asena Kidaha -93 kg flokki (C-grúppa) kl. 08.00
Alexander Örn Kárason -93 kg flokki (B-grúppa) kl. 08.00
Viktor Samúelsson -105 kg flokki (B-grúppa) kl. 11.30
Laugardagur 22. mars
Helgi Jón Sigurðsson -120 kg flokki (B-grúppa) kl. 10.00
Lucy Stefaniková -76 kg flokki (A-grúppa) kl. 15.00
Sunnudagur 23. mars
Birgit Rós Becker -84 kg flokki (B-grúppa) kl. 09.00
Kristín Þórhallsdóttir – 84 kg flokki (A-grúppa) kl. 09.00
Þorbjörg Matthíasdóttir +84 kg flokki kl. 13.00
Hanna Jóna Sigurjónsdóttir + 84 kg flokki kl. 13.00
Þorsteinn Ægir Óttarsson +120 kg flokki kl. 13.00
Í fylgd með keppendum verða Auðunn Jónsson yfirþjálfari og honum til aðstoðar verða Lára Bogey Finnbogadóttir og Hinrik Pálsson, sem einnig mun sitja þing EPF. Laufey Agnarsdóttir mun svo sinna störfum alþjóðadómara á mótinu.
Bein útsending verður frá mótinu. Sjá hér.
Áfram Ísland!