Skip to content

HM öldunga í kraftlyftingum með búnaði.

Heimsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði fer fram dagana 5.–13. október en mótið fer fram í Sun City í Suður–Afríku. Nú er klassíska hluta mótins lokið og keppni í kraftlyftingum í búnaði taka við. Fyrir hönd Íslands keppa þrír karlar og ein kona í kraftlyftingum með búnaði.

Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:

Föstudagur 11. október
Sæmundur Guðmundsson   -83 kg  Master IV   Keppni hefst kl. 07.00
Flosi Jónsson   -105 kg  Master IV Keppni hefst kl. 07:00
Elsa Pálsdóttir   -76 kg  Master III  Keppni hefst kl. 11:00
Hörður Birkisson   -74 kg   Master III  Keppni hefst kl. 13:00

Linkur á streymi => HÉR