Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótið í bekkpressu með búnaði (allir aldursflokkar). Mótið fer fram sunnudaginn 27. október og er í umsjón Kraftlyftingadeildar Breiðabliks. Endanleg tímaáætlun verður auglýst síðar þegar keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdar- og aldursflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar.
Hér er um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningar skal senda á netfangið robert@kjaran.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn
6. október. Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk rennur svo út á miðnætti þann 13. október. Keppnisgjald er 6000 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.