Vestur-Evrópumótið í klassískum kraftlyftingum og kraftlyftingum með búnaði fer fram helgina 13.-15. september á Möltu. Fyrir hönd Íslands keppa þær Arna Ösp Gunnarsdóttir og Þorbjörg Matthíasdóttir sem báðar keppa í klassískum kraftlyftingum. Keppni hjá þeim hefst á morgun laugardaginn 14. sept.
Arna Ösp Gunnarsdóttir -69 kg flokki. Keppni hefst kl. 9.00
Þorbjörg Matthíasdóttir +84 kg flokki. Keppni hefst ca. kl. 10.00
Beint streymi er frá mótinu: HÉR