Skip to content

Elín Melgar í 7. sæti á EM í klassískri bekkpressu.

Elín Melgar Aðalheiðardóttir hefur lokið keppni á Evrópumótinu í klassískri bekkpressu þar sem hún keppti í -69 kg flokki og hafnaði þar í 7. sæti. Elín opnaði á 100 kg en sú lyfta hlaut ekki náð fyrir augum dómara og var dæmd ógild. Elín lét það ekki slá sig út af laginu og hækkaði upp í 102.5 kg í næstu tilraun, sem er jöfnun á hennar besta árangri og var sú lyfta dæmd gild. Í síðustu lyftu reyndi hún við 105 kg sem reyndist of þungt í dag en sú þyngd verður örugglega sigruð í framtíðinni og meira til.

Til hamingju með árangurinn Elín!