Evrópumeistaramót öldunga í kraftlyftingum með búnaði fer fram dagana 1.–4. maí en mótið er að þessu sinni haldið í Hamm/Luxemburg. Fyrir hönd Íslands keppir Sæmundur Guðmundsson í aldursflokknum 70-79 ára en honum til aðstoðar á mótinu verður Kristleifur Andrésson þjálfari.
Keppnisdagskrá íslenska hópsins:
Miðvikudagur 1. maí
Sæmundur Guðmundsson -83 kg flokki. Keppni hefst kl. 14.00 að íslenskum tíma.