Landsliðsnefnd KRAFT kallar eftir tilnefningum í landsliðsverkefni 2024 í öllum aldursflokkum (opinn flokkur, unglingar og öldungar). Tilnefningar skulu berast frá félögum fyrir 15.desember á netfangið coach@kraft.is. Í tilnefningu þarf að koma fram nafn, kennitala, sími og netfang viðkomandi keppanda og hvaða verkefni er stefnt á (mót og þyngdarflokk). Taka skal fram hvenær keppandi náði lágmörkum og á hvaða mótum hann keppti á síðasta ári.
LÁGMÖRK OPINN FLOKKUR
LÁGMÖRK UNGLINGAR (ÚTBÚNAÐUR)
LÁGMÖRK UNGLINGAR (KLASSÍSKAR)
Önnur skilyrði til landsliðsþátttöku koma fram í verklagsreglum KRAFT.
Þar segir m.a. að keppandi þarf að:
a. vera íslenskur ríkisborgari eða hafa haft fasta búsetu á Íslandi í a.m.k. 3 ár.
b. hafa verið félagi í aðildarfélagi KRAFT í a.m.k. 12 mánuði fyrir mót. Hægt er að veita undanþágu frá þessu skilyrði ef um keppendur undir 18 ára aldri er að ræða.
c. hafa náð landsliðslágmörkum fyrir viðkomandi mót á tímabili sem nær yfir næstliðið ár og allt að 70 dögum fyrir upphaf móts.
d. hafa tekið þátt í, án þess að hafa fallið úr keppni, a.m.k. tveimur meistaramótum á mótaskrá KRAFT eða mótum sem viðurkennd eru af IPF á næstliðnu ári. Veita má undanþágu frá þessu skilyrði vegna sérstakra aðstæðna, svo sem ef meiðsl eða veikindi keppanda hafa hamlað þátttöku í mótum á liðnu ári.
e. taka þátt á Íslandsmeistaramóti í viðkomandi grein á árinu.
f. hafa með orðum sínum og hegðun verið sjálfum sér og íþróttinni til sóma.
g. hafa skrifað undir landsliðssamning.