Skráning er hafin á Bikarmótið í klassískri bekkpressu og bekkpressu (með útbúnaði), sem fram fer þann
12. ágúst nk. Mótshaldari er Kraftlyftingadeild Ármanns og fer mótið fram í Íþróttahúsinu Fellaskóla, Norðurfelli 17-19, Reykjavík. Endanleg tímaáætlun verður ákveðin þegar skráning og keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag og þyngdarflokk. Skýrt skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn, netföng og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal fylgja.
Hér eru um meistaramót að ræða og gildir því því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda á netfangið jonasdottir74@gmail.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti
laugardaginn 22. júlí. Keppnisgjald er 6.500 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.