Skip to content

ÍM – skráning hafin

  • by

Skráning er hafin á Íslandsmeistaramótin í kraftlyftingum – allir aldursflokkar og klassískum kraftlyftingum – opnum flokki sem eru sett á dagana 11 – 13 mars nk. Endanleg dag- og timasetning fer eftir fjölda skráninga og verður ákveðin þegar lokaskráning liggur fyrir.

Skráningarfrestur er til miðnættis 19.febrúar og skal senda skráningu til kraft@kraft.is með afrit til hjaltiar@simnet.is
Frestur er svo til miðnættis 26.febrúar til að breyta skráningu og greiða keppnisgjald.
Gjaldið er 7500 ISK og skal greitt inn á reikning KRAFT 552-26-007004, kt . 700410-2180. Sendið afrit af kvittun með nafn félagsins á kraft@kraft.is

Í skráningu skal koma fram nafn félags og nafn og símanúmer ábyrgðarmanns skráningar, nafn, kennitala og þyngdarflokk keppanda og skal taka skýrt fram í hvaða keppni viðkomandi er skráður; með eða án búnaðar. Á ÍM í búnaði þarf líka að taka fram aldursflokk.
Skrá skal líka alla aðstoðarmenn sem ætla að fá aðgang að vigtun og upphitun.
Á öllum meistaramótum gildir sú regla að keppendur hafi verið skráðir í kraftlyftingafélagi í amk þrjá mánuði.

Það er sjaldan offramboð á stangarmönnum og starfsfólki – hvetjum félög til að bjóða fram aðstoðarmenn. Margar hendur vinna létt verk!