Kraftlyftingakona ársins, Fanney Hauksdóttir, var var s.l. þriðjudag kjörin Íþróttakona Seltjarnarnes 2016 að viðstöddu fjölmenni í Félagsheimili Seltjarnarness. Þetta er í þriðja sinn sem hún hlýtur þennan heiður.
Fanney, sem keppir í -63 kg fl., sérhæfir sig í bekkpressu og hefur átt frábæru gengi að fagna á síðustu árum. Af hennar mörgu afrekum á síðasta ári ber helst að hún varð heimsmeistari í klassískri bekkpressu og Evrópumeistari í bekkpressu. Þar að auki vann hún til silfurverðlauna á HM í bekkpressu, setti Norðulandamet í bekkpressu og lauk árinu í þriðja sæti á heimslistanum í bekkpressu.
Við óskum Fanneyju til hamingju með titilinn!