Dagfinnur Ari Normann, landsliðsmaður úr kraftlyftingadeild Stjörnunnar, var í dag valinn íþróttamaður Garðabæjar 2015.
Dagfinnur keppti í -74 kg flokki á árinu, varð Íslandsmeistari og Norðurlandameistari og raðaði inn íslandsmetum bæði í opnum flokki og flokki unginga.
Innilega til hamingju, Dagfinnur!