Samtök íþróttafréttamanna hafa upplýst hvaða 10 íþróttamenn urðu efstir í kjöri þeirra til Íþróttamanns ársins og þar á meðal er kraftlyftingakonan Sóley Margrét Jónsdóttir. Sóley er vel að þessari tilnefningu komin, en hún varð á árinu bæði Evrópumeistari og heimsmeistari í kraftlyftingum með búnaði, auk þess sem hún setti heimsmet í unglingaflokki.
Kjörið verður sýnt í beinni dagskrá á RÚV laugardaginn 4. janúar kl. 19:35. Við hvetjum alla kraftlyftingaunnendur til þess að fylgjast með kjörinu. Áfram Sóley!