Skráning er hafin á bikarmót KRAFT í klassískum kraftlyftingum sem haldið verður laugardaginn 26. apríl í Kópavogi (Breiðablik). Nánari tímasetning verður birt þegar skráningu er lokið og keppendafjöldi liggur fyrir.
Félög skulu senda inn upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, aldurs- og þyngdarflokk. Einnig er nauðsynlegt að skrá alla aðstoðarmenn, nöfn þeirra og netföng ásamt símanúmeri ábyrgðarmanns skráningar. Hér er um meistaramót að ræða og gildir því sú regla að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í félag a.m.k. þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningar skal senda á netfangið robert@kjaran.com með afriti á kraft@kraft.is fyrir miðnætti laugardaginn 5. apríl Lokafrestur til að greiða skráningargjöld og breyta um þyngdarflokk hjá þeim sem eru skráðir til þátttöku er til miðnættis laugardaginn 12. apríl. Keppnisgjald er 8000 kr. og greiðist inn á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.