Ragnheiður Kr. Sigurðardóttir, Grótta, og Þorbergur Guðmundsson, KFA urður í dag stigameistarar á Íslandsmeistaramóti í réttstöðulyftu í Kópavogi.
Ragnheiður háði harða baráttu við félaga sinn úr Gróttu, Tinnu Rut Traustadóttur, en sigraði að lokum með 160 kg lyftu í -57 kg flokki og 195,4 stig. En það var stigahæsta lyftan i dag.
Í karlaflokki var keppnin tvísýn framan af, eða þangað til unglingurinn Þorbergur Guðmundsson frá Akureyri gerði sig lítið fyrir og togaði upp 340 kg í síðustu lyftu mótsins. Hann lyfti í +120 kg flokki unglinga og fékk 190,026 stig.
Stigahæsta liðið var lið KFA frá Akureyri, en sameiginleg stigakeppni var í karla- og kvennaflokki.
Við óskum Breiðablik til hamingju með vel framkvæmt mót, og sigurvegurum í öllum flokkum til hamingju með daginn.
HEILDARÚRSLIT: http://results.kraft.is/meet/islandsmeistaramot-i-rettstodulyftu-2014
Dómarar á mótinu voru Helgi Hauksson, Sturlaugur Gunnarsson, Ásmundur R. Ólafsson, Hulda B. Waage. Hulda Pjetursdóttir og Ellert Ómarsson.