Lára Bogey Finnbogadóttir hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu sambandsins. Hún mun sjá um almenn skrifstofustörf, upplýsingaöflun, skýrsluskrif og skráningar á mót innanlands og utan.
Fastur viðverutími á skrifstofu er á miðvikudögum 13.00 – 16.00 en utan þess tíma svarar Lára á netfanginu kraft@kraft.is og í síma 868 5332
Lára þekkir vel til starfs KRAFT bæði sem keppandi, þjálfari, mótshaldari og stjórnarmaður í Kraftlyftingafélagi Akraness.
Við óskum hana velkomna til starfa!