Kristrún Ingunn Sveinsdóttir hefur lokið keppni á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum. Kristrún sem keppir í -52 kg flokki fékk allar sínar lyftur gildar í hnébeygju þar sem hún lyfti mest 132.5 kg. Í bekkpressu kláraði hún 72.5 kg í fyrstu lyftu en náði því miður ekki að lyfta 77.5 kg í annarri og þriðju tilraun. Í réttstöðulyftu gerði hún sér svo lítið fyrir og bætti sitt eigið Íslandsmet með 152.5 kg lyftu. Samanlagt lyfti hún því 357.5 kg sem skilaði henni 8. sæti af 15 keppendum.
Til hamingju Kristrún með góðan árangur og Íslandsmetið!


