Íslandsmeistaramót í bekkpressu í öllum aldursflokkum, klassísk og með búnaði, fer fram í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi sunnudaginn 23. apríl nk. Endanleg tímaáætlun verður ákveðin þegar skráning og keppendafjöldi liggur fyrir. Skráning er hafin.
Félög skulu senda allar upplýsingar um keppendur, nafn, kennitölu, félag, þyngdarflokk og aldursflokk þar sem það á við. Skýrt skal taka fram hvort viðkomandi ætlar að keppa með eða án búnaðar. Nauðsynlegt er að skrá alla aðstoðarmenn lika og nafn, netfang og simanúmer ábyrgðarmanns skráningar skal fylgja.
Hér eru um meistaramót að ræða og gildir því reglan um að keppendur þurfa að hafa verið skráðir í amk þrjá mánuði fyrir mót. Ef um keppanda er að ræða sem ekki hefur keppt áður á móti hjá KRAFT þarf að fylgja með staðfesting á því hvenær viðkomandi var skráður í félagið (t.d. skjáskot úr Sportabler).
Skráningu skal senda til robert@kjaran.com með afrit á kraft@kraft.is fyrir miðnætti sunnudaginn 2. apríl. Keppnisgjald er 6.500 kr. og greiðist á reikning 552-26-007004 kt. 700410-2180.