Heimsmeistaramót öldunga í klassískum kraftlyftingum og í kraftlyftingum með búnaði fer fram dagana 5.–13. október en mótið fer fram í Sun City í Suður–Afríku. Nú er klassíska hluta mótins lokið og keppni í kraftlyftingum í búnaði taka við. Fyrir hönd Íslands keppa þrír karlar og ein kona í kraftlyftingum með búnaði.
Keppendur og keppnisdagskrá íslenska landsliðsins:
Föstudagur 11. október
Sæmundur Guðmundsson -83 kg Master IV Keppni hefst kl. 07.00
Flosi Jónsson -105 kg Master IV Keppni hefst kl. 07:00
Elsa Pálsdóttir -76 kg Master III Keppni hefst kl. 11:00
Hörður Birkisson -74 kg Master III Keppni hefst kl. 13:00
Linkur á streymi => HÉR