Skip to content

Fulltrúar Special Olympics til Danmerkur með landsliði KRAFT

  • by

Landsliðið er á förum á HM í kraftlyftingum í Viborg í Danmörku. Keppendur eru þau Sóley Margrét Jónsdóttir, Alex Cambray Orrason og Guðfinnur S Magnússon.

Í tengslum við HM verður haldið  kraftlyftingamót á vegum IPF og Special Olympics International og er ánægjulegt að geta sagt frá þátttöku tveggja íslenskra keppenda á því móti. Það eru þau María Sigurjónsdóttir og Jón Ingi Guðfinnsson frá íþróttafélaginu Suðra á Selfossi en með í för verður Örvar Arnarson, þjálfari þeirra. 

Í  maí 2022 gerðu KRAFT og Íþróttasamband fatlaðra með sér samstarfssamning með það fyrir augum að efla og auka þjónustu við fatlaða kraftlyftingamenn og -konur og er þessi þátttaka liður í því.

Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir keppendur taka þátt í þessu móti en Special Olympics samtökin hafa unnið að auknu samstarfi við alþjóðasamtök í ýmsum greinum. Samstarfsverkefni KRAFT, ÍF og Special Olympics á Íslandi kringum HM í Danmörk er spennandi skref í átt að fleiri framtíðarverkefnum.  Íslensku keppendurnir eru þarna í félagsskap besta kraftlyftingafólks heims þar sem barist er um heimsmeistaratitla.

Special Olympics samtökin byggja á keppni jafningja og val keppenda á leika Special Olympics byggir ekki á árangri, heldur góðri mætingu, framförum og góðri félagslegri hegðun.  Það er því mjög áhugavert að tengja þessi tvö mót saman þar sem forsendur til keppni eru mismunandi en metnaður og markmið þau sömu.

María og Jón Ingi hafa æft kraftlyftingar hjá íþróttafélaginu Suðra á Selfossi undanfarin ár en þar hefur Örvar Arnarson þjálfari  byggt upp öfluga lyftingadeild.
Þau keppa föstudaginn 18. nóvember. Alls mæta 10 keppendur til leiks, en þeir eru frá  Svíþjóð , Bretlandi og Bandaríkjunum auk Íslands.

Streymi verður frá keppninni

María og Jón Ingi með þjálfara sínum – klár í slaginn!