Evrópumeistaramót unglinga í kraftlyftingum hefst í St. Pétursborg í Rússlandi á miðvikudag.
Fyrir hönd Íslands keppa í kvennflokki Camilla Thomsen í -63 kg flokki og Arnhildur Anna Árnadóttir í -72 kg flokki en í karlaflokki Einar Örn Guðnason í -93 kg flokki og Júlían J.K. Jóhannsson ðí +120 kg flokki.
Konurnar keppa á föstudag, Einar á laugardag og Júlían á sunnudag, en sýnt verður beint frá mótinu hér: http://goodlift.info/live.php