Í gær fór fram kjör íþróttamanns ársins 2012 á Seltjarnarnesi og varð Aron Teitsson, kraftlyftingamaður úr Gróttu, fyrir valinu. Við sama tækifæri hlaut kraftlyftingadeild Gróttu afreksstyrk vegna sigursins í liðakeppni KRAFT og mörgum góðum afrekum öðrum á árinu.
Við óskum Aroni og félögum hans innilega til hamingju með þennan heiður. Þau eru vel að þessum viðurkenningum komin.