Ísland eignaðist nýjan alþjóðlegan kraftlyftingadómara í síðustu viku þegar Kári Rafn Karlsson stóðst dómaraprófi IPF á Evrópumóti unglinga í Rússlandi.
Kári er formaður Kraftlyftingafélags Akraness, gjaldkeri Kraftlyftingasambands Íslands og formaður landsliðsnefndar. Það verður því að segjast að hann leggi sitt af mörkum til eflingar íþróttarinnar í landinu.
Við óskum Kára til hamingju með áfangann.