Stofnað hefur verið kraftlyftingafélagið Víkingur á Ísafirði, en það er 13.aðildarfélag KRAFT.
Aðalmaðurinn bak við hið nýja félag er Sigfús Fossdal og er hann formaður þess og eini keppandi enn sem komið er.
Önnur félög í landinu geta farið að búa sig undir harðnandi samkeppni að vestan og vestfirðingar vita nú hvert þeir geta snúið sér til að komast í hóp kraftlyftingamanna.
Við óskum Ísfirðingum til hamingju með nýja félagið og góðs gengis í uppbyggingu íþróttarinnar á staðnum.