Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands boðar til formannafundar aðildarfélaga KRAFT. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 27. nóvember kl 17.00 í húsi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands að Engjavegi 4 (fundarsalur B). Dagskrá fundarins verður send ásamt seinna fundarboði.
Um rétt til fundarsetu segir í 26. gr. laga KRAFT:
Formannafundur er ráðgefandi samkoma og hann sækja formenn aðildarfélaga KRAFT. Í forföllum formanna taka varaformenn sæti í þeirra stað. Að öðrum kosti stjórnarmenn samkvæmt ákvörðun hlutaðeigandi stjórnar.
Ef félög vilja koma með tillögur fyrir fundinn þá skal hún send á kraft@kraft.is eigi síðar en miðvikudaginn 13. nóvember.