Skip to content

Sóley Evrópumeistari með yfirburðum!

Sóley Margrét Jónsdóttir átti gríðarlega góðan dag á Evrópumótinu í kraftlyftingum í búnaði í Thisted í Danmörku en hún lauk keppni áðan. Skemmst er frá því að segja að hún sigraði í +84 kg flokki með yfirburðum og tryggði sér þar með Evrópumeistaratitil! Sóley er 22 ára gömul og á eftir eitt ár í unglingaflokki í viðbót en keppti hér í flokki fullorðinna.

Sóley lyfti 270 kg í hnébeygju og voru allar lyftur gildar hjá henni þar. Í bekkpressu fóru 182,5 kg upp í annarri tilraun. Í þriðju tilraun reyndi hún við 190 kg en fékk þá lyftu dæmda ógilda þrátt fyrir að hún færi alla leið upp með tvö rauð ljós gegn einu hvítu. Í réttstöðulyftu lyfti hún 207,5 kg og voru allar lyftur gildar hjá henni þar. Samtals 660 kg, en næsti keppandi lyfti 622,5 kg. Sóley hlaut gull í hnébeygju og bekkpressu og silfur í réttstöðu.

Öll framganga Sóleyjar í keppninni í dag einkenndist af öryggi og yfirvegun. Við óskum Sóleyju innilega til hamingju með frábært afrek og verðskuldaðan titil! Hún er íþróttinni og landinu til sóma!

Umfjöllun um keppni dagsins má m.a. finna hér: https://www.mbl.is/sport/frettir/2023/05/07/soley_evropumeistari_med_yfirburdum/