Viktor Samúelsson keppti á HM í dag og hafnaði í 12.sæti í -105kg flokki með seríuna 282,5-195-315=792,5kg.
Það er 10kg undir hans persónulega besta og ekki tölurnar sem hann stefndi að, en vogun vinnur – vogun tapar og í þetta sinn gekk dæmið ekki alveg upp.
„Ég reyndi við bætingar í öllum þriðju lyftum en það gekk ekki í dag og ég skildi eftir þó nokkur kíló á pallinum sem ég sæki aftur um leið og ég kemst á pallinn aftur,“segir Viktor í viðtali við fréttamann Morgunblaðins eftir mótið, og allir sem þekkja Viktor vita að hann muni standa við það.